05.09.26 - 14:10
Brynjar Ingi Erluson
Arnar Gunnlaugs sýnir úr treyjusafninu

Arnar Gunnlaugs klæddi sig í nokkrar glæsilegar treyjur

Mynd: EPA

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins, sýndi skemmtilegt safn treyjumynda frá ferlinum í tilefni af Treyjudeginum.
Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.
Hann var haldinn í fyrsta sinn á Íslandi í gær. Af því tilefni birti Arnar nokkrar vel valdar myndir af sér í treyjum félaganna sem hann lék með á ferlinum, auk einnar í íslenska landsliðsbúningnum og Víkingstreyjunni eftir að hafa þjálfað liðið um árabil.
Þar má sjá ýmsar huggulegar treyjur en Arnar skartar búningum ÍA, Feyenoord, Sochaux, Nurnberg, Stoke og Leicester, auk íslensku landsliðstreyjunnar.
Hægt er að sjá myndirnar hér fyrir neðan.