05.09.26 - 18:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fred framlengir við Fram (Staðfest) - Breiðablik vildi fá hann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fred Saraiva hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir út árið 2028. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Breiðablik viljað fá hann í sínar raðir.
Fred gekk til liðs við Fram árið 2018 og hefur verið algjör lykilmaður. Hann á 250 leiki að baki og hefur skorað 60 mörk.
Fred gekk til liðs við Fram árið 2018 og hefur verið algjör lykilmaður. Hann á 250 leiki að baki og hefur skorað 60 mörk.

TENGT EFNI
Að verða samningslausir og munu fá mörg símtöl
„Við erum einstaklega lánsöm að hafa Fred hjá Fram. Á næsta ári fer hann inn í sitt 10. tímabil með félaginu. Alveg frá upphafi hefur hann verið mjög skýr á því að koma félaginu aftur í fremstu röð á Íslandi og sýnt það í verki," sagði Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs karla.
„Hann hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar undanfarin ár. Önnur íslensk félög sýna honum áhuga á hverju ári, en hugur hans er hjá Fram. Það segir mikið um tryggð hans við félagið og metnaðinn fyrir því sem við erum að byggja upp.“
Fram heimsækir Víking í toppslag í lokaumferð Bestu deildarinnar fyrir tvískiptinguna.