05.09.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmaður Crystal Palace orðinn liðsfélagi Andra Fannars (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Tyrkneska félagið Kasimpasa hefur fengið Jesurun Rak-Sakyi á láni frá Crystal Palace út tímabilið.
Þessi 23 ára gamli vængmaður er mættur aftur til Tyrklands en hann var á láni hjá Caykur Rizespor fyrri hluta síðasta tímabils þar sem hann skoraði fjögur mörk í 11 leikjum.
Þessi 23 ára gamli vængmaður er mættur aftur til Tyrklands en hann var á láni hjá Caykur Rizespor fyrri hluta síðasta tímabils þar sem hann skoraði fjögur mörk í 11 leikjum.
Rak-Sakyi gekk til liðs við Crystal Palace frá Chelsea árið 2019. Hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2021 en hann hefur alls spilað 10 leiki fyrir enska liðið, átta í úrvalsdeildinni.
Kasimpasa er með fimm stig eftir þrjár umferðir í tyrknesku deildinni en Andri Fannar Baldursson er leikmaður liðsins.
Kasimpasa er með fimm stig eftir þrjár umferðir í tyrknesku deildinni en Andri Fannar Baldursson er leikmaður liðsins.
