Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   lau 05. október 2019 21:02
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Spánn: Sigrar hjá Valencia og Osasuna
Einn leikur fór fram í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, þar tók Osasuna á móti Villarreal.

Gestirnir í Villarreal komust yfir á 5. mínútu og voru með forystuna í hálfleik.

Heimamenn tóku hins vegar við sér í seinni hálfleik. Facundo Roncaglia jafnaði metin strax í upphafi seinni hálfleiks og á 79. mínútu skoraði Ezequiel Avila og kom heimamönnum yfir. Þetta reyndist vera sigurmark leiksins.

Osasuna jafnaði Villarreal að stigum með sigrinum og er nú með 11 stig í 11. sæti.

Síðdegisleikur spænsku úrvalsdeildarinnar var viðureign Valencia og Alaves.

Þar höfðu heimamenn betur með tveimur mörkum gegn einu marki gestanna. Maxi Gomez og Daniel Parejo skoruðu mörk Valencia áður en Lucas Perez minnkaði muninn fyrir Alaves.

Valencia í 8. sæti með 12 stig en Alaves í 15. sæti með 8 stig.

Osasuna 2 - 1 Villarreal
0-1 Pau Torres ('5 )
1-1 Facundo Roncaglia ('46 )
2-1 Ezequiel Avila ('79 )

Valencia 2 - 1 Alaves
1-0 Maxi Gomez ('27 )
2-0 Daniel Parejo ('83 , víti)
2-1 Lucas Perez ('89 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner