Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. október 2022 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Di María fór fram úr Messi
Angel Di María lagði upp öll þrjú mörkin í sigri Juventus
Angel Di María lagði upp öll þrjú mörkin í sigri Juventus
Mynd: EPA
Argentínski kantmaðurinn Angel Di María er nú með næst flestar stoðsendingar í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa lagt upp þrjú mörk í 3-1 sigri Juventus á Maccabi Haifa.

Di María samdi við Juventus í sumar eftir að hafa spilað fyrir PSG frá 2015.

Hann lagði upp öll mörk Juventus í sigrinum á Maccabi Haifa í kvöld og er því kominn með 38 stoðsendingar í Meistaradeildinni.

Aðeins Cristiano Ronaldo hefur lagt upp fleiri mörk í keppninni en hann er með 42 stoðsendingar.

Di María fór fram úr Lionel Messi á listanum. Messi hefur lagt upp 37 mörk í keppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner