Fotbolti.net
05.10.26 - 09:52
Elvar Geir Magnússon

Alex Scott gæti verið frá í átta vikur

Scott er meiddur eftir leikinn gegn Króatíu.

Scott er meiddur eftir leikinn gegn Króatíu.

Canon

Mynd: EPA

Alex Scott, miðjumaður Bournemouth, hefur dregið sig úr enska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Tékklandi á þriðjudag vegna meiðsla í læri.

Scott, sem er gríðarlega eftirsóttur 23 ára leikmaður, verður frá í sex til átta vikur.
Chelsea leiðir kappið um Alex Scott
TENGT EFNI

Chelsea leiðir kappið um Alex Scott

Scott stóð sig frábærlega í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir England sem sigraði Króatíu 7-0 í Þjóðadeildinni á laugardaginn.

Hann fann fyrir vandamálinu fyrir leikinn en spilaði 70 mínútur á miðjunni ásamt Elliot Anderson áður en honum var skipt út af. Framundan er mikil leikjatörn hjá Bournemouth sem spilar í Evrópudeildinni.

Landsliðsþjálfari Englands, Thomas Tuchel, fór fögrum orðum um Scott eftir leikinn gegn Króatíu.

„Fyrsta byrjunin og hvílík byrjun. Geggjuð frammistaða. Það er svo mikil mýkt í snertingum við boltann og ákvarðanataka hans er á hæsta stigi. Hann spilar af svo miklu sjálfstrausti. Hann er svo öruggur og vinnusamur. Hann er bara heildarpakkinn." sagði Tuchel eftir leik um frammistöðu Scott.

Varnarmaðurinn Ezri Konsa er einnig meiddur og er kominn aftur til félagsliðs síns, Arsenal.
Áfall fyrir Bournemouth.

Áfall fyrir Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.