05.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea leiðir kappið um Alex Scott

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar eru sammála um að Chelsea leiði kapphlaupið um miðjumanninn öfluga Alex Scott, sem verður fáanlegur næsta sumar.

TENGT EFNI
Enginn lykilmaður seldur í janúar
Scott er lykilmaður í liði Bournemouth og stóð sig frábærlega í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með enska landsliðinu á dögunum, þegar England gjörsigraði Króatíu með sjö mörkum gegn engu á útivelli.
Bournemouth hafnaði 60 milljónum punda frá Chelsea í sumar en félagið neyðist til að selja Scott næsta sumar. Stjórnendur segja þó að leikmaðurinn sé alls ekki til sölu í janúarglugganum.
Scott rennur út á samningi sumarið 2028 og verður því að öllum líkindum seldur eftir yfirstandandi leiktíð.
„Fyrsti byrjunarliðsleikurinn og þvílík frammistaða. Hann er svo mjúkur á boltanum og ákvarðanatakan hans er frábær. Hann er fullur sjálfstrausts og leggur gríðarlega mikla vinnu á sig fyrir liðið. Hann er stórkostlegur leikmaður, hann er allur pakkinn," sagði Thomas Tuchel landsliðsþjálfari um Scott eftir stórsigurinn gegn Króatíu.
Arsenal og Liverpool eru einnig meðal félagsliða sem hafa mikinn áhuga á Scott, en Telegraph er meðal fjölmiðla sem segir Chelsea leiða kapphlaupið. Real Madrid hefur einnig verið nefnt til sögunnar.