05.10.26 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andy Carroll nafngreinir geranda sinn

Andy Carroll.

Mynd: EPA

Carroll spilaði á sínum tíma 9 landsleiki fyrir England en leikur í dag í ensku utandeildinni.

Mynd: Dagenham & Redbridge

Andy Carroll.

Mynd: EPA
Andy Carroll, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því hver maðurinn var sem beitti hann kynferðisofbeldi árið 2019.
Carroll, sem lék meðal annars með Newcastle United, Liverpool og West Ham, segir að Kevin Adams, fyrrverandi danskennari úr BBC-þættinum Fame Academy, hafi ráðist á hann á heimili hans þegar hann svaf. Adams var vinur þáverandi kærustu Carroll og var gestur á heimili hans.

TENGT EFNI
Carroll vaknaði við að karlmaður reyndi að veita sér munnmök
Carroll fjallaði fyrst um atvikið í ævisögu sinni Owning It, sem kom út á dögunum. Þar nefndi hann ekki manninn á nafn en lýsti því hvernig sjónvarpsmaður hefði verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisofbeldi.
Eftir að bent var á að nafn Adams kæmi fram í opinberum gögnum frá réttarhöldunum staðfesti Carroll að um hann væri að ræða.
Vonandi get ég loksins byrjað að leggja þennan kafla að baki mér,“ sagði Carroll við The Sun.
Adams var dæmdur í 20 mánaða fangelsi í september 2023 eftir að hafa verið fundinn sekur um kynferðisofbeldi. Hann var einnig settur á sérstaka skrá yfir kynferðisbrotamenn.
Carroll, sem leikur nú með Dagenham & Redbridge í ensku utandeildinni, segir að atvikið hafi haft mikil áhrif á líf sitt og að hann hugsi enn daglega um það.

Tomorrow's front page: My sex attacker was BBC star, says Andy Carroll
— The Sun (@TheSun) October 3, 2026
https://t.co/KYgfRaNYYB https://t.co/3wrZuywt3u