Fotbolti.net
30.09.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Enginn lykilmaður seldur í janúar

Enginn lykilmaður seldur í janúar
Canon

Mynd: EPA

Ensk stórveldi hafa mikinn áhuga á Alex Scott, öflugum miðjumanni Bournemouth sem lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir England á dögunum.
Chelsea, Arsenal og Liverpool eru meðal félagsliða sem vilja kaupa Scott strax í janúarglugganum, en BBC segir að leikmaðurinn sé ekki til sölu. Bournemouth ætlar ekki hlusta á tilboð í hann í janúar, þegar Scott mun aðeins eiga eitt og hálft ár eftir af samningi.

Stórveldin tvö úr Manchester sýndu Scott líka áhuga í sumar en þeim tókst að styrkja sig á miðsvæðinu og eru því ekki lengur með í kapphlaupinu.

Scott er 23 ára gamall og hefur komið með beinum hætti að 3 mörkum í 6 fyrstu leikjum tímabilsins þrátt fyrir að spila aftarlega á miðjunni.

Scott vildi skipta um félag í sumar en Bournemouth neitaði að selja hann þrátt fyrir 64 milljóna punda tilboð frá Chelsea. Miðjumaðurinn hafnaði tveimur samningstilboðum frá Bournemouth á síðustu leiktíð og hefur ekki áhuga á að gera nýjan samning.

Á síðustu árum hefur Bournemouth gert frábæra hluti, sérstaklega miðað við hversu marga lykilmenn félagið hefur selt frá sér. Félagið er í mjög góðri stöðu fjárhagslega og að keppa í Evrópudeildinni svo enginn lykilmaður verður seldur á tímabilinu þrátt fyrir áhuga stórvelda á leikmönnum eins og Eli Junior Kroupi og Rayan.

Scott líður vel hjá Bournemouth og er sterklega búist við að hann fái að skipta um félag næsta sumar.
Enginn lykilmaður seldur í janúar
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.