fim 05. nóvember 2020 11:30
Fótbolti.net
Lið ársins 2020: Sjö frá Íslandsmeisturunum
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir eru báðar í liðinu.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir eru báðar í liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimavöllurinn birti í dag uppgjörsþátt fyrir Pepsi Max-deild kvenna í ár og þar voru ýmsar verðlaunaafhendingar.

Meðal annars var lið ársins í Pepsi Max-deildinni valið.

Íslandsmeistarar Breiðabliks eiga hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn í liðinu.

Valur, sem endaði í öðru sæti, á þrjá leikmenn í liðinu auk þess sem Mary Alice Vignola, vinstri bakvörður Þróttar, er í liðinu. Mary Alice er sögð á leið í Val fyrir næsta tímabil.

Hér að neðan má sjá lið ársins sem og hlusta á Heimavöllinn þar sem rætt var um liðsvalið.


Heimavöllurinn - Risa uppgjör á Maxinu, fimm vanmetnar og sú besta skeindi deildinni
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner