Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. nóvember 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin í dag - Leicester og Arsenal eiga toppslagi
Albert í beinni útsendingu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Þriðja umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar fer fram í kvöld og er nokkuð um áhugaverða slagi á dagskrá.

Í A- og B-riðlum eru toppslagir í kvöld. Fyrst á AS Roma leik við CFR Cluj áður en Arsenal tekur á móti Molde.

Öll lið í C-riðli eru jöfn með þrjú stig og þá eigast Benfica og Rangers við í toppslagi D-riðils.

Sverrir Ingi Ingason og félagar í PAOK mæta PSV í E-riðli og þá eiga Albert Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar gríðarlega erfiðan leik á útivelli gegn Real Sociedad. AZ lenti í dauðariðli en er með fullt hús stiga eftir sigra gegn Napoli og Rijeka. Albert hefur verið að gera flotta hluti að undanförnu og er með fimm mörk í síðustu þremur leikjum. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Í G-riðli er toppslagur í Leicester þegar Braga kíkir í heimsókn frá Portúgal, en Braga hefur verið duglegt við að stríða enskum liðum í Evrópukeppnum undanfarin tímabil. Í H-riðli er toppslagur á milli AC Milan og Lille á meðan Celtic mætir Sparta frá Prag.

Tottenham mætir til leiks í J-riðli og þarf sigur eftir tap gegn Antwerp í síðustu umferð. Arnór Sigurðsson, Hörður Björgvin Magnússon og félagar í CSKA Moskvu eiga þá leik við Feyenoord í erfiðum K-riðli.

EUROPA LEAGUE: Group A
17:55 Roma - Cluj
20:00 Young Boys - CSKA Sofia

EUROPA LEAGUE: Group B
17:55 Rapid - Dundalk
20:00 Arsenal - Molde (Stöð 2 Sport 2)

EUROPA LEAGUE: Group C
17:55 Slavia Prag - Nice
17:55 Hapoel Beer Sheva - Leverkusen

EUROPA LEAGUE: Group D
17:55 Benfica - Rangers
17:55 Lech Poznan - Standard Liege

EUROPA LEAGUE: Group E
17:55 Omonia - Granada CF
17:55 PAOK - PSV

EUROPA LEAGUE: Group F
17:55 Real Sociedad - AZ (Stöð 2 Sport 2)
17:55 Rijeka - Napoli

EUROPA LEAGUE: Group G
20:00 Leicester - Braga (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Zorya - AEK

EUROPA LEAGUE: Group H
20:00 Milan - Lille
20:00 Celtic - Sparta Prag

EUROPA LEAGUE: Group I
17:55 Sivasspor - Qarabag
20:00 Villarreal - Maccabi Tel Aviv

EUROPA LEAGUE: Group J
17:55 Ludogorets - Tottenham (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Antwerp - LASK Linz

EUROPA LEAGUE: Group K
20:00 Feyenoord - CSKA
20:00 Dinamo Zagreb - Wolfsberger AC

EUROPA LEAGUE: Group L
20:00 Rauða stjarnan - Gent
20:00 Hoffenheim - Liberec
Athugasemdir
banner
banner