Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. desember 2020 21:52
Victor Pálsson
Spánn: Cadiz skellti Barcelona
Mynd: Getty Images
Cadiz 2 - 1 Barcelona
1-0 Alvaro Gimenez('8)
1-1 Pedro Alcala(57, sjálfsmark)
2-1 Alvaro Negredo('63)

Það gengur lítið hjá stórliði Barcelona þessa dagana en liðið spilaði við Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Cadiz hefur komið verulega á óvart á tímabilinu og vann til að mynda Real Madrid á útivelli fyrr í vetur.

Í kvöld tókst nýliðunum einnig að skella Barcelona en leiknum lauk með 2-1 sigri heimaliðsins.

Reynsluboltinn Alvaro Negredo skoraði sigurmarkið í seinni hálfleik sem lyfti Cadiz upp í fimmta sæti deildarinnar.

Barcelona situr í sjöunda sæti og er heilum 12 stigum á eftir Atletico Madrid sem er á toppnum.

Athugasemdir
banner
banner
banner