Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. desember 2021 15:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Aston Villa og Leicester: Vardy á bekknum
Daka byrjar
Daka byrjar
Mynd: Getty Images
Byrjunarliðin í loka leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni milli Aston Villa og Leicester eru klár.

Steven Gerrard og Brendan Rodgers stjórar félagana mætast aftur en þeir unnu saman hjá Liverpool á árunum 2012-2015 og mættust síðan aftur er Gerrard stýrði Rangers og Rodgers stýrði Celtic í Skotlandi.

Aston Villa tapaði 2-1 gegn Man City í síðustu umferð en Gerrard gerir tvær breytingar frá þeim leik. Ashley Young og Jacob Ramsey koma inní liðið en Matt Targett og Leon Bailey víkja.

Það eru einnig tvær breytingar á liði Leicester frá 2-2 jafntefli gegn Southampton í síðustu umferð. Jamie Vardy er á bekknum en hann er eitthvað tæpur. Þá víkur Soumare fyrir Dewsbury-Hall.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Young, Luiz, Nakamba, Buendia, McGinn, Ramsey, Watkins.

Leicester: Schmeichel, Castagne, Evans, Soyuncu, Thomas, Ndidi, Dewsbury-Hall, Barnes, Maddison, Lookman, Daka.

Athugasemdir
banner
banner
banner