Vængmaðurinn Ellert Jón Björnsson hefur skrifað undir eins árs samning við ÍA en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ellert Jón kemur frá Val en þangað fór hann einmitt frá ÍA síðastliðið sumar. Ellert lék átta leiki með ÍA í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og einnig átta leiki með Val þar sem að hann skoraði eitt mark.