Fotbolti.net
06.01.05 - 07:42

Thomas Buffel til Rangers (Staðfest)

Thomas Buffel til Rangers (Staðfest)
Canon
Rangers hafa staðfest kaupin á hinum 23 ára gamla miðjumanni Thomas Buffel frá Feyenoord. Hann kostar um 2,3 milljónir punda og er talið að hann gæti jafnvel spilað með gegn Celtic á sunnudaginn þegar erkifjendurnir og risarnir í Skoska boltanum mæstast í bikarkeppninni.
"Ég er hæstánægður með að vera kominn til svona frábærs liðs" sagði belgíski landsliðsmaðurinn sem skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning á Ibrox. "Ég get ekki beðið eftir því að byrja. Ég hef ekki spilað í tvær vikur en ég er tilbúinn fyrir sunnudaginn."

Buffel hefur skorað 32 mörk á síðustu tveim tímabilum í Hollandi sem verður að teljast ansi gott fyrir miðjumann. Honum gekk þó illa að fóta sig undir stjórn Ruud Gullit hjá Feyenoord og ákvað því að færa sig um set.

Hann er kærkomin viðbót fyrir Alex McLeish sem var í skýjunum yfir því að klófesta kappann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.