Fotbolti.net
06.01.05 - 18:22

Jarosik til Chelsea (Staðfest)

Jarosik í baráttu við núverandi liðsfélaga sinn, Arjen Robben

Jarosik í baráttu við núverandi liðsfélaga sinn, Arjen Robben

Canon
Chelsea hafa staðfest kaupin á tékkneska miðjumanninum Jiri Jarosik frá CSKA í Moskvu. Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning eins og við höfum reyndar þegar greint frá en í fyrstu var talið að hann kæmi að láni út tímabilið.
Jarosik kom til CSKA frá Spörtu í Prag en hann hefur spilað í Rússlandi undanfarin tvö ár. Hann vann fjóra titla með Spörtu áður en hann vann titilinn í fyrra með CSKA.

"Þetta er stórt tækifæri fyrir mig og ég vil gera mitt besta og njóta velgengni" sagði Jarosik um daginn. "Ég verð að viðurkenna að ég er pínu stressaður. Ég veit að ég mun byrja frá grunni í London og þessi tvö yndislegu ár í Moskvo telja lítið þar.

Ég tala ekki mjög góða ensku og ég kann ekki að keyra bílinn á vinstri akreininni! En svona stórt tækifæri kemur kannski bara einu sinni á ferlinum. Þetta er ótrúleg áskorun fyrir mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.