06.01.05 - 18:29
Hafliði Breiðfjörð
Les Ferdinand til Reading (Staðfest)




Framherjinn Les Ferdinand gekk í dag í raðir enska 1. deildarfélagsins Reading sem Ívar Ingimarsson leikur með. Ferdinand sem er 38 ára gamall gerði samning við félagið út leiktíðina og verður löglegur er Reading mætir Swansea í enska bikarnum um helgina.
Hann kemur frá Bolton Wanderers þaðan sem hann var leystur undan samningi nú um áramótin.
,,Ég vona að hann muni auka markaskorun félagsins og verði hvatning fyrir allt liðið," sagði Steve Coppell stjóri Reading.
,,Ég vona að hann muni auka markaskorun félagsins og verði hvatning fyrir allt liðið," sagði Steve Coppell stjóri Reading.
