06.01.16 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Eva í dómssal vegna brottrekstursins

Eva Carneiro með eiginmanni sínum.

Mynd: Goal.com

Eva Carneiro með eiginmanni sínum.

Mynd: Goal.com
Læknirinn Eva Carneiro mætti í dómssal í morgun en hún kærði Chelsea fyrir ólögmæta uppsögn og mismunun vegna kynferðis. Fyrstu yfirheyrslur hafa farið fram.
Mikið fjölmiðlafár myndaðist þegar Eva lenti upp á kant við Jose Mourinho, þáverandi knattspyrnustjóra, sem endaði með því að hún missti starf sitt sem læknir Chelsea í september síðastliðnum.
Carneiro mætti ásamt eiginmanni sínum, Jason De Carteret, í dómssal í morgun.
Mourinho hellti sér yfir hana þegar hann var ósáttur við að hún hljóp inn á völlinn til að hlúa að Eden Hazard í leik gegn Swansea í fyrstu umferð. Dómarinn Michael Oliver hafði veifað til merkis um að læknaliðið ætti að koma inná en það þýddi að Chelsea þurfti að spila með aðeins níu menn á vellinum í lokin þar sem Thibaut Courtois hafði fengið rautt fyrr í leiknum.
Mourinho var æfur yfir því að Eva hljóp inná og hefði þar með sýnt leiksilningsleysi. Hann bannaði henni að vera starfandi kringum leiki liðsins í kjölfarið og hún lét af störfum í september.
Upptökur frá hliðarlínunni áttu að hafa sýnt að Mourinho notaði óvandað orðbragð til Evu en honum var ekki refsað af enska knattspyrnusambandinu.
Síðan þetta gerðist hefur Mourinho einnig verið rekinn, þar sem árangur Chelsea á tímabilinu var langt undir væntingum.