Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 06. janúar 2021 14:30
Magnús Már Einarsson
Alex Morgan að jafna sig eftir smit
Bandaríska landsliðskonan Alex Morgan segist vera á góðum batavegi eftir að hafa greinst með kórónuveiruna á dögunum.

Morgan spilaði með Tottenham fyrir áramót en hún er nú mætt aftur til Orlando Pride í Bandaríkjunum.

Morgan og fjölskyludumeðlimir hennar greindust með veiruna eftir jólafrí í Kaliforníu.

„Við erum öll við góða heilsu og á góðum batavegi," sagði hin 31 árs gamla Morgan á Twitter.
Athugasemdir