Fotbolti.net
06.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Bakari til Valladolid (Staðfest)

Bakari (til vinstri) í barátunni.

Bakari (til vinstri) í barátunni.

Canon
Spænska liðið Real Valladolid hefur fengið sóknarmanninn Dagui Bakari að láni frá Lens út þessa leiktíð. Valladolid sem að er í 15.sæti í La Liga hefur gengið illa að undanförnu eftir að aðalframherji liðsins Ariza Makukula sem að er í láni frá Nantes meiddist á hné og verður frá í hálft ár. Valladolid telur Bakari geta fyllt skarð Makukula og hefur félagið einnig samið við Lens um forkaupsrétt á Bakari í lok tímabilsins. Bakari hefur skorað sjö mörk með Lens á tímabilinu og þar af þrjú í Evrópukeppni félagsliða en hann hefur misst sæti sitt í byrjunarliðinu og finnst því fínt að fara til Spánar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.