Ýmsir stuðningsmenn Real Madrid eru ósáttir með Eden Hazard eftir að tap Spánarmeistaranna gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í gær.
Hazard átti slakan leik gegn sínum fyrrum liðsfélögum og verðskuldaði Chelsea 2-0 sigurinn.
Hazard virtist samgleðjast vinum sínum í Chelsea og var myndaður að hlæja með þeim á vellinum eftir leikslok. Þessi mynd hefur ekki vakið mikla lukku meðal stuðningsmanna Real.
Þeir telja Hazard sýna alvarlega vanvirðingu gagnvart Real Madrid með þessari hegðun sinni. Hér að neðan er brot úr spjallþættinum El Chiringuito de Jugones þar sem var mikil dramatík vegna Hazard.
We think it’s safe to say there’s a lot of people in Madrid not overly pleased with Eden Hazard. 😬#LLL
— La Liga Lowdown 🧡🇪🇸⚽️ (@LaLigaLowdown) May 5, 2021
🧡🇪🇸⚽️ pic.twitter.com/o9UueeHKEo
Athugasemdir