Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   þri 06. maí 2025 16:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliði Brentford: Líklegt að Mbeumo fari í sumar
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Wissa og Mbeumo.
Wissa og Mbeumo.
Mynd: EPA
„Mér finnst líklegt að Bryan fari. Ég veit ekki með WIssa á þessum tímapunkti. Allir vona að hann verði áfram. Sama hvað, þa'er ég ánægður með tímabilið og ánægður fyrir hönd þeirra beggja. Þeir eiga þetta svo skilið. Ég er nokkuð rólegur varðandi hvað gerist með Bryan og Wissa," segir Christian Nörgaard, fyrirliði Brentford, í viðtali við Sky sports.

„Margar spurningar eru spurðar um þá og þú getur nánast fundið áhyggjurnar í kringum leikmennina þegar talað er um að þeir geti farið."

Bryan Mbeumo hefur verið besti leikmaður Brentford í vetur og Yoane Wissa hefur verið frábær í stöðu fremsta manns. Báðir hafa þeir skorað 18 mörk á tímabilinu.

Brentford seldi Ollie Watkins til Aston Villa sumarið 2020 og Said Benrahma til West Ham. Síðasta sumar var svo Ivan Toney seldur til Al Hilal.

„Ég var einn af leikmönnunum þegar við vorum að missa Watkins, Benrahama og Toney. Þetta heldur bara áfram."

„Félagið er búið að kaupa Igor Thiago, sem er frábær karakter og hann mun skína í þessari deild á einhverjum tímapuntki."

„Ég veit ekki hvenær, en ég er viss um að hann verði klár ef Wissa fær sitt drauma tækifæri eða ef Bryan fer og það verða einhverjar tilfærslur frekst. Félagið er mjög gott í að fá inn leikmenn og er alltaf tveimur eða þremur skrefum á undan.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner