Fótbolti.net spáir ÍA níunda sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Skagamenn enduðu í 10. sæti í fyrra sem nýliðar í deildinni.
Fótbolti.net rýnir í dag í mögulegt byrjunarlið ÍA í sumar en rúm vika er í fyrsta leik Skagamanna gegn KA.
Fótbolti.net rýnir í dag í mögulegt byrjunarlið ÍA í sumar en rúm vika er í fyrsta leik Skagamanna gegn KA.
Árni Snær Ólafsson er á sínum stað í markinu en varamarkvörður er Aron Bjarki Kristjánsson.
Hinn ungi og efnilegi Jón Gísli Eyland Gíslason verður væntanlega hægri bakvörður en Hallur Flosason kemur einnig til greina þar. Í vinstri bakverðinum er Aron Kristófer Lárusson líklegastur en hann kom til ÍA frá Þór í fyrra.
Óttar Bjarni Guðmundsson og Lars Marcus Johannsson verða miðverðir en hinn ungi Benjamin Mehic hefur einnig spilað talsvert á undirbúningstímabilinu. Lars Marcus hefur lítið verið með í vetur vegna meiðsla og spurning er hvernig leikformið hans verður í byrjun móts.
Sindri Snær Magnússon, Stefán Teitur Þórðarson og Steinar Þorsteinsson manna líklega miðjuna. Arnar Már Guðjónsson, fyrirliði ÍA, gæti náð seinni hluta móts en hann er á batavegi eftir að hafa meiðst illa á hné í fyrrasumar. Brynjar Snær Pálsson er einnig kostur á miðjuna en hann hefur spilað talsvert á undirbúningstímabilinu.
Sóknartríóið verður líklega skipað Viktori Jónssyni, Bjarka Steini Bjarkasyni og Tryggva Hrafni Haraldssyni. Tryggvi hefur verið eftirsóttur í vetur en Skagamenn hafa hafnað tilboðum í hann. Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Marteinn Theodórsson, Gísli Laxdal Unnarsson gætu einnig komið við sögu í fremstu stöðunum en þeir eru á meðal leikmanna sem hafa gert góða hluti með 2. flokki ÍA undanfarin ár.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 9. sæti - ÍA
Athugasemdir