Fotbolti.net
06.06.21 - 21:41
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeild kvenna: FH gerði sér góða ferð upp á Skaga

Lengjudeild kvenna: FH gerði sér góða ferð upp á Skaga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
<b>ÍA 0 - 3 FH </b>
0-1 Þóra Kristín Hreggviðsdóttir ('45 )
0-2 Brittney Lawrence ('53 )
0-3 Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('78 )
FH náði í þriðja sigur sinn í Lengjudeildinni í kvöld er liðið vann ÍA 3-0 á Norðurálsvellinum á Akranesi.

FH-liðið er í góðum gír eftir að hafa unnið Þór/KA í Mjólkurbikarnum á dögunum en fyrsta mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks og var það Þóra Kristín Hreggviðsdóttir sem gerði markið.

Brittney Lawrence tvöfaldaði forystuna á 53. mínútu áður en Katrín S. Vilhjálmsdóttir gulltryggði sigurinn tólf mínútum fyrir leikslok.

Þriðji sigur FH í deildinni staðreynd en liðið er í 3. sæti með 9 stig eftir fyrstu fimm leikina en ÍA í 6. sæti með 6 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.