City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   fös 06. júní 2025 11:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arsenal sendir fyrirspurn á Chelsea
Kepa í búningi Real Madrid en þar var hann á láni tímabilið 2023-24.
Kepa í búningi Real Madrid en þar var hann á láni tímabilið 2023-24.
Mynd: EPA
Arsenal hefur samkvæmt heimildum Sky Sports sent fyrirspurn á Chelsea varðandi möguleikann á því að fá markvörðinn Kepa Arrizabalaga í sínar raðir.

Arsenal var með Neto sem varamarkvörð á tímabilinu, hann var á láni frá Bournemouth, en Kepa var einmitt á láni hjá Bournemouth frá Chelsea á liðinni leiktíð.

Sky Sports segir að Kepa sé með fimm milljóna punda riftunarákvæði hjá Chelsea.

Spænski landsliðsmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Hann varð árið 2018 dýrasti markvörður sögunnar þegar Chelsea greiddi Athletic Bilbao rúmlega 71 milljón punda fyrir markvörðinn.
Athugasemdir
banner
banner