Russell Martin er í viðræðum um að taka við Leicester City en þetta herma heimildir Telegraph.
Martin stýrði MK Dons, Swansea og Southampton á Englandi og var svo um skamma hríð hjá Rangers.
Hann kom Southampton upp í ensku úrvalsdeildina árið 2024 en var rekinn í desember sama ár eftir að hafa aðeins unnið einn leik í deildinni.
Á síðasta ári tók hann við Rangers en það ævintýri var stutt. Hann var rekinn eftir aðeins 123 daga við stjórnvölinn.
Telegraph segir að Martin gæti snúið aftur í þjálfun á næstu vikum en hann er með tilboð frá Leicester City, sem féll úr ensku B-deildinni á nýafstöðnu tímabili.
Martin hefur ekki samþykkt tilboð Leicester til þessa en hann er einnig með tilboð frá fleiri félögum á Englandi og utan landsteinanna.




