06.07.04 - 14:42
Magnús Már Einarsson
Kiraly til Crystal Palace (Staðfest)

Kiraly með tilþrif.


Kiraly með tilþrif.

Crystal Palace hefur fengið ungverska landsliðsmarkvörðinn Gabor Kiraly frítt frá þýska liðinu Herthu Berlin. Hinn 28 ára gamli Kiraly á 198 Bundesliguleiki að baki með Herthu missti sæti sitt í byrjunarliðinu á nýliðnum vetri til Christian Fiedler. Á bekknum hjá Herthu í vetur lenti hann í ótrúlegu atviki en hann meiddist á kálfa við að fagna marki og var frá í þrjár vikur efitr það.
Kiraly sem að var einnig undir smásjá Tottenham og Liverpool mun eflaust vera í eldlínunni þegar að Ungverjar mæta Íslendingum í undankeppni HM í haust.
