06.07.04 - 14:48
Magnús Már Einarsson
Bolton fær Túnisbúa (Staðfest)

Jaidi er hér til vinstri.


Jaidi er hér til vinstri.

Bolton hefur fengið þriðja leikmann sinn í sumar því að Radhi Jaidi varnarmaður frá Túnis hefur gengið frá tveggja ára samning við liðið en áður hafði Bolton fengið sóknarmennina Michael Bridges og Les Ferdinand. Jaidi sem að er 28 ára kemur frá Esperance de Tunis en hann á 68 landsleiki að baki með Túnis sem að sigraði Afríkumót landsliða fyrr í vetur. Jaidi segist hlakka til að reyna sig í einni bestu deild í heimi en hann segir að tilboðið um að koma í ensku úrvalsdeildina hafi verið of gott til að hafna.
