Fotbolti.net
06.07.04 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð

Manchester United kaupir Rossi (Staðfest)

Nýr liðsfélagi kominn í lið Man Utd

Nýr liðsfélagi kominn í lið Man Utd

Canon
Manchester United keypti í dag ítalska táninginn Giuseppe Rossi frá Parma. Rossi sem er aðeins 16 ára gamall hafði ekki skrifað undir atvinnumannssamning við Parma og því þarf Man Utd aðeins að greiða lága upphæð fyrir hann í skaðabætur. Rossi er talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Evrópu. Hann er annar táningurinn sem United kaupir í sumar á eftir hinum 17 ára gamla Pique sem gerði 5 ára samning við þá. Rossi verður ekki í leikmannahópi United sem fer á þriggja liða mót í Bandaríkjunum síðar í mánuðinum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.