Fotbolti.net
06.07.26 - 21:39
Brynjar Ingi Erluson

„Enn eina ferðina guggnar Martínez á því að taka manninn út af“

Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik á HM

Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik á HM

Canon

Mynd: EPA

Óskar Hrafn Þorvaldsson, sérfræðingur á RÚV, segir Roberto Martínez hafa þurft að borga hressilega fyrir það að taka ekki Cristiano Ronaldo af velli í 1-0 tapi Portúgals gegn Spáni í kvöld.
HM: Merino skaut Evrópumeisturunum áfram - Síðasti dansinn hjá Ronaldo
TENGT EFNI

HM: Merino skaut Evrópumeisturunum áfram - Síðasti dansinn hjá Ronaldo

Portúgal er úr leik á HM eftir tap gegn Spáni á því sem var líklega síðasta stórmót hins 41 árs gamla Cristiano Ronaldo.

Ronaldo átti ekki sinn besta leik og var lítið áberandi. Óskar Hrafn Þorvaldsson sagðist í HM-stofunni ekki skilja hvers vegna Ronaldo fékk að vera inni á vellinum allan leikinn.

„Er ekki skrítið að þú ert Cristiano Ronaldo og talar um alla keppnina um að þetta gæti verið síðasta keppnin og síðasti leikurinn á HM? Sáuð þið það? Hann gaufaðist um völlinn og var ekki með í neinu, fór alltaf burtu frá boltanum. Þegar kemur sending undir lokin þegar Bernardo Silva, af öllum mönnum, stekkur hæst allra í teignum,“ sagði Óskar í HM-stofunni.

Goncalo Ramos kom inn af bekknum í síðasta leik og skoraði sigurmarkið, en hann fékk ekki tækifæri í kvöld.

„Hversu fúlt er að vera Goncalo Ramos? Hversu pirrandi er að horfa á Roberto Martínez guggna enn eina ferðina á að taka manninn út af og borgar fyrir það með því að vera búinn í 16-liða úrslitum,“ sagði hann ennfremur.

Eiður Smári Guðjohnsen sagði að það hefði verið sniðug hugmynd að hafa Ramos og Ronaldo báða inni á, en Óskar Hrafn skaut þá inn í að það væri vel hægt að gera breytingar svo lengi sem Ronaldo færi ekki af velli.

„En ekki þá til að skyggja á Ronaldo. Það væri glæpur,“ sagði hann í lokin.
„Enn eina ferðina guggnar Martínez á því að taka manninn út af“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.