Fotbolti.net
06.07.26 - 16:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Everton kaupir George af Chelsea (Staðfest)

Everton kaupir George af Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Everton hefur staðfest kaupin á Tyrique George frá Chelsea. Everton greiðir 18 milljónir punda fyrir George en sú upphæð getur hækkað um sex milljónir punda.

Chelsea, þar sem George er uppalinn, fær svo 15% af næstu sölu á leikmanninum. George er tvítugur enskur kantmaður sem lék á láni hjá Everton seinni hlutann af síðasta tímabili og kom við sögu í ellefu leikjum án þess að koma að marki.

Ákvæði var í lánssamningi George um að Everton gæti keypt hann á 25 milljónir punda en Everton nýtti ekki það ákvæði og samdi um lægri upphæð.

„Þetta er risastórt félag. Ég hef séð sjálfur hversu ástríðufullir aðdáendurnir eru, hversu mikið félagið þýðir fyrir þá – og ég vil standa mig vel, skora og skapa mörk til að gleðja þá."

„Aðdáendurnir og strákarnir í búningsklefanum létu mig líða velkominn um leið og ég kom í febrúar. Þetta er sterkur hópur sem á bara eftir að verða betri. Ég er spenntur fyrir því sem framundan er hjá hópnum og félaginu,"
segir George.

George á að baki 40 leiki fyrir yngri landslið Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.