Fotbolti.net
06.07.26 - 09:33
Kári Snorrason

Glasner kynntur hjá Forest (Staðfest) - Fimmti stjórinn á einu ári

Oliver Glasner tekinn við Forest.

Oliver Glasner tekinn við Forest.

Canon

Mynd: EPA

Oliver Glasner hefur verið ráðinn nýr stjóri Nottingham Forest. Hann tekur við af Vitor Pereira, sem var rekinn í síðustu viku.

Forest virkjaði uppsagnarákvæði í samningi Pereira og tilkynnti honum um uppsögnina aðeins tveimur mínútum áður en ákvæðið rann út.
Austurríkismaðurinn lét af störfum hjá Crystal Palace að loknu síðasta tímabili eftir að hafa ákveðið að framlengja ekki samning sinn. Hann stýrði Palace með góðum árangri og vann liðið meðal annars Sambandsdeild Evrópu í vor.

Glasner er fimmti stjórinn sem tekur við Forest á innan við ári. Þeir Nuno Espirito Santo, Ange Postecoglou, Sean Dyche og Vitor Pereira hafa allir verið látnir taka pokann sinn frá því að síðasta tímabil hófst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.