Tonali í Tottenham fyrir metfé (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham hefur gengið frá kaupum á ítalska miðjumanninum Sandro Tonali. Tonali, sem er 26 ára, kemur á 100 milljónir punda frá Newcastle.
Miðjumaðurinn er sagður fá yfir 275 þúsund pund í vikulaun. Hann vildi vinna með Roberto De Zerbi, landa sínum og stjóra Tottenham, en það var líka áhugi á Tonali frá m.a. Manchester City.
Salan á Tonali er sú næsthæsta hjá Newcastle á eftir Alexander Isak sem fór á 125 milljónir punda til Liverpool síðasta sumar.

Tonali er dýrasti leikmaður í sögu Tottenham og er þetta í annað sinn á einni viku sem Tottenham slær metið sitt, því Mateus Fernandes varð sá dýrasti síðasta þriðjudag þegar Tottenham greiddi West Ham 85 milljónir punda.
Tottenham greiðir 92,5 milljónir punda fyrir Tonali og getur sú upphæð hækkað um 7,5 milljónir punda með raunhæfum árangurstengdum greiðslum. Ítalski landsliðsmaðurinn kemur til Tottenham eftir þrjú ár í Newcastle.
Spurs hefur fengið Andy Robertson, Marcos Senesi, Martin Dubravka, Jan Paul van Hecke, Mateus Fernandes og Sandro Tonali í sumar og greitt alls yfir 200 milljónir punda fyrir leikmenn í sumar.
Tottenham hefur endað í 17. sæti í ensku úrvalsdeildinni tvisvar í röð og er stefnan sett mun hærra á næsta tímabili.