Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. ágúst 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace og Fulham berjast um Fraser
Mynd: Getty Images
Crystal Palace og Fulham vilja fá kantmanninn Ryan Fraser í sínar raðir fyrir næsta tímabil.

Fraser er án félags en samningur hans hjá Bournemouth rann út 30. júní og hann kláraði ekki tímabilið með liðinu.

Fraser hjálpaði Bournemouth á sínum tíma úr ensku C-deildinni upp í úrvalsdeildina.

Í fyrrasumar var Fraser orðaður við Arsenal en hann náði sér ekki á strik á nýliðnu tímabili þar sem hann skoraði einungis eitt mark í 32 leikjum.

Nú stefnir allt í að Fraser fari til London og gangi til liðs við nýliða Fulham eða Crystal Palace.
Athugasemdir
banner
banner