Fotbolti.net
06.08.26 - 17:56
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Akliouche til PSG (Staðfest)

Akliouche til PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Paris Saint-Germain

Evrópumeistarar Paris Saint-German hafa staðfest komu franska vængmannsins Maghnes Akliouche frá Mónakó.
PSG hefur lengi verið á eftir Akliouche sem setti það í forgang að ganga til liðs við franska stórveldið.

Félagið hefur átt í viðræðum við Mónakó undanfarnar vikur og náðist samkomulag um kaupverð í síðustu viku.

Akliouche gekkst undir læknisskoðun í vikunni og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning. Kaupverðið er talið nema um 50 milljónum evra.

Liverpool sýndi einnig áhuga en Akliouche vildi aðeins fara til PSG.

Akliouche er 24 ára gamall og getur bæði leikið á vængnum og á miðjunni. Hann spilaði yfir hundrað leiki á fimm árum með aðalliði Mónakó.

Þá hefur hann skorað eitt mark í tíu A-landsleikjum fyrir Frakkland.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.