06.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Átján ára landsliðsmaður Grikklands til Dortmund (Staðfest)

Mynd: Borussia Dortmund

Mynd: Borussia Dortmund
Borussia Dortmund hefur staðfest komu gríska landsliðsmannsins Kostas Karetsas frá Genk fyrir 33 milljónir evra.
Karetsas er 18 ára gamall og fæddur og uppalinn í Belgíu. Hann lék með yngri landsliðum Belga en valdi síðar Grikkland, þaðan sem foreldrar hans eru.
Hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Genk þrátt fyrir ungan aldur og verið talinn einn efnilegasti leikmaður belgísku deildarinnar.
Dortmund setti sig í samband við Genk á dögunum og félögin náðu fljótt samkomulagi um kaupverð. Karetsas skrifaði síðan undir fimm ára samning við þýska félagið um helgina.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Dortmund eftir fjóra daga þegar liðið mætir Arsenal í Emirates-bikarnum.
Karetsas þreytti frumraun sína með gríska landsliðinu á síðasta ári og hefur þegar skorað þrjú mörk í tíu landsleikjum.

?? Borussia Dortmund verpflichtet das 18-jährige griechische Talent Konstantinos Karetsas vom KRC Genk. Der Offensivspieler unterschreibt beim BVB einen Vertrag bis 30.06.2031. pic.twitter.com/vlpysMTF8g
— Borussia Dortmund (@BVB) August 3, 2026