06.08.26 - 16:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dagný Brynjars skiptir í Selfoss (Staðfest)

Dagný er komin með leikheimild á Selfossi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný og Sara Björk.

Dagný Brynjarsdóttir hefur fengið félagaskipti í Selfoss frá enska félaginu West Ham.
Hún er komin með leikheimild, þó að glugginn hafi lokað fyrir rúmri viku síðan, og gæti þess vegna spilað gegn Haukum 10. ágúst.
Dagný, sem verður 35 ára í næstu viku, eignaðist sitt þriðja barn fyrr á þessu ári og ekkert hafði spurst út um hennar framtíð í boltanum.

Dagný á að baki 122 landsleiki og hefur í þeim skorað 38 mörk. Síðasti leikur sem Dagný spilaði var gegn Noregi í lokaleik riðlakeppninnar á EM í fyrra.
Hún hóf ferilinn hjá KFR og Ægi. Hún lék svo með Val og Selfossi áður en atvinnumannaferilinn hófst.
Erlendis hefur hún spilað með Bayern München, Portland Thorns og West Ham. Hún kom heim til Íslands árið 2020 og spilaði þá með Selfossi.
Selfoss er í 6. sæti Lengjudeildarinnar. Ef það fer svo að hún spili gegn Haukum gæti hún mætt Söru Björk Gunnarsdóttur sem samdi við Hauka í sumar. Þær spiluðu fjöldan allan af leikjum saman á miðju íslenska landsliðsins.
Hún hóf ferilinn hjá KFR og Ægi. Hún lék svo með Val og Selfossi áður en atvinnumannaferilinn hófst.
Erlendis hefur hún spilað með Bayern München, Portland Thorns og West Ham. Hún kom heim til Íslands árið 2020 og spilaði þá með Selfossi.
Selfoss er í 6. sæti Lengjudeildarinnar. Ef það fer svo að hún spili gegn Haukum gæti hún mætt Söru Björk Gunnarsdóttur sem samdi við Hauka í sumar. Þær spiluðu fjöldan allan af leikjum saman á miðju íslenska landsliðsins.

Dagný og Sara Björk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 12 | +12 | 28 |
| 2 | KR | 11 | +15 | 22 |
| 3 | HK | 12 | +4 | 20 |
| 4 | Haukar | 11 | -3 | 18 |
| 5 | Keflavík | 11 | +10 | 16 |
| 6 | Selfoss | 11 | +4 | 16 |
| 7 | ÍA | 12 | +4 | 15 |
| 8 | FHL | 11 | +1 | 14 |
| 9 | Völsungur | 12 | -4 | 11 |
| 10 | Tindastóll | 11 | -43 | 3 |