06.08.26 - 14:16
Kári Snorrason
Diomande til Real Madrid (Staðfest)

Skiptin hafa verið lengi í pípunum.

Mynd: EPA

Skiptin hafa verið lengi í pípunum.

Mynd: EPA
Real Madrid hefur fest kaup á Fílabeinsstrendingnum Yan Diomande og skrifar hann undir sex ára samning við félagið.
Madrídarfélagið greiðir 125 milljónir evra fyrir kantmanninn sem gæti hækkað um fimmtán milljónir til viðbótar vegna árangurstengdra greiðslna.
Diomande er 19 ára gamall kantmaður sem gerði góða hluti með RB Leipzig á síðasta tímabili. Hann skoraði tólf mörk í 33 leikjum með liðinu í Bundesliga.
Hann þekkir vel til spænska boltans en hann var keyptur til Leipzig frá Leganes fyrir um ári síðan. Hann á að baki tíu leiki í LaLiga og tvö mörk.
Á nýloknu heimsmeistaramóti lék Diomande alla fjóra leiki Fílabeinsstrandarinnar og lagði upp eitt mark. Liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum gegn Noregi.

Comunicado Oficial: Diomande.https://t.co/tiTXGCCxg8
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) August 6, 2026