06.08.26 - 18:12
Brynjar Ingi Erluson
Dýrasti leikmaður í sögu Leeds (Staðfest)

Mynd: Leeds

Mynd: Leeds
Leeds United hefur fest kaup á enska landsliðsmarkverðinum James Trafford frá Manchester City fyrir metfé.
Leeds greiðir 40 milljónir punda fyrir Trafford en upphæðin getur hækkað með árangurstengdum greiðslum.
Hann verður þar með dýrasti leikmaður í sögu Leeds og um leið dýrasti breski markvörður sögunnar. Leeds sló félagaskiptametið síðast árið 2023 er það fékk Georginio Rutter frá Hoffenheim fyrir 35,5 milljónir punda.
Leeds hóf viðræður um Trafford eftir að Newcastle dró sig úr kapphlaupinu og gekk hratt frá kaupunum.
Trafford, sem er 23 ára gamall, skrifaði undir fimm ára samning í dag og er þriðji leikmaðurinn sem Leeds fær í varanlegum skiptum í sumar á eftir Harry Wilson og Tarik Muharemovic.
Hann er uppalinn hjá Man City en sló í gegn með Burnley í ensku B-deildinni tímabilið 2024-2025 þar sem hann hélt 30 sinnum hreinu og hjálpaði liðinu að komast upp í úrvalsdeildina. Síðasta sumar var hann keyptur aftur til City þar sem hann taldi sig vera næsta aðalmarkvörð liðsins áður en félagið keypti Gianluigi Donnarumma frá Paris Saint-Germain. Hann spilaði 17 leiki í öllum keppnum, en aðeins fjóra í deild.

???? Welcome to Leeds, James! pic.twitter.com/Lps89bMTiT
— Leeds United (@LUFC) August 6, 2026