06.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Freyja Ólafs semur við Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fjölnir

Freyja Ólafsdóttir er gengin til liðs við Fjölni frá ÍH en þetta kemur fram í tilkynningu Fjölnis.
Freyja er fædd árið 2008 og kemur úr unglingastarfi FH, en hún á 41 meistaraflokks að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Hún er efnilegur varnarmaður sem býr yfir góðri tækni og leikskilningi og getur einnig spilað sem miðjumaður, en hún lék sinn fyrsta leik með liðinu í 7-1 stórsigrinum á Dalvík/Reynir í síðustu umferð.
„Ég er virkilega spennt að vera komin í Fjölni og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir með félaginu. Stelpurnar hafa tekið einstaklega vel á móti mér og ég finn strax fyrir jákvæðum anda í hópnum,“ sagði Freyja við undirskrift, en hún skrifaði undir samning út næsta tímabil.
Veselin Chilingirov, þjálfari Fjölnis, er hæstánægður með að hafa nælt í Freyju.
„Við erum mjög ánægð með að fá Freyju til liðs við okkur. Hún er afar efnilegur leikmaður sem passar vel inn í okkar leikstíl. Freyja er sterkur varnarmaður, með góða boltatækni og öflug í návígjum. Hún sýnir mikinn metnað og hungur til að ná árangri og því fellur hún vel inn í hópinn. Hún getur einnig leyst hlutverk á miðsvæðinu sem gefur okkur fleiri möguleika í mikilvægum leikjum fram undan. Við hlökkum til að sjá hana bæði núna og á komandi árum,“ sagði Veselin eða Veskó eins og hann er oftast kallaður.
Fjölnir spilar í A-úrslitum 2. deildar og er því í baráttu um að komast upp í Lengjudeildina. Liðið er á toppnum með 28 stig, en fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni er á morgun gegn Fylki sem er í 4. sætinu, aðeins tveimur stigum frá toppnum.