06.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum aðstoðarmaður Slot tekur við Al Ahli (Staðfest)

Marino Pusic er nýr þjálfari Al Ahli

Mynd: EPA

Marino Pusic er nýr þjálfari Al Ahli

Mynd: EPA
Sádi-arabíska félagið Al Ahli var fljótt að finna arftaka Matthias Jaissle, sem tók við Newcastle United í gær. Hinn hollensk-króatíski Marino Pusic hefur verið ráðinn í hans stað.
Newcastle staðfesti í gær ráðningu Matthias Jaissle til næstu fjögurra ára. Enska félagið greiddi Al Ahli 9,5 milljónir punda fyrir að fá Þjóðverjann lausan undan samningi.
Nokkrir þjálfarar komu til greina sem arftakar Jaissle en Al Ahli ákvað að lokum að ráða Marino Pusic. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Pusic stýrði Shakhtar Donetsk frá 2023 til 2025 og tók síðan við Al Jazira í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á síðustu leiktíð.
Hann hefur einnig stýrt Twente og starfað sem aðstoðarmaður Arne Slot hjá bæði Twente og Feyenoord.

?????? ?????? ??????.. ?????? ??? 2028#??????https://t.co/KIXdiClsms
— ?????? ?????? ??????? (@ALAHLI_FC) August 6, 2026