Fotbolti.net
06.08.26 - 17:51
Elvar Geir Magnússon

Gavi mætti bleikhærður til æfinga

Gavi mætti bleikhærður til æfinga
Canon

Mynd: Instagram

Gavi er mættur aftur til æfinga hjá Barcelona en þessi frábæri miðjumaður er kominn með nýtt útlit. Hann er búinn að lita hár sitt bleikt.

Ástæðan er sú að hann gaf það loforð að hann myndi lita hárið bleikt ef Spánn myndi standa uppi sem heimsmeistari. Og hann er maður orða sinna.

Það vakti athygli þegar bakvörðurinn Marc Cucurella lofaði að húðflúra mynd af landsliðsþjálfaranum Luis de la Fuente og stóð við sín orð. En það voru fleiri loforð efnd.

Gavi átti 22 ára afmæli í gær og notaði afmælisdaginn í að láta lita á sér hárið. Hann er nú mættur aftur til æfinga hjá Börsungum. Hann var talsvert mikið á meiðslalistanum á síðasta tímabili en er búinn að jafna sig af fullu og ætlar að negla byrjunarliðssæti undir stjórn hins þýska Hansi Flick.
Húðflúraði landsliðsþjálfarann á öxlina
TENGT EFNI

Húðflúraði landsliðsþjálfarann á öxlina


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.