Fotbolti.net
06.08.26 - 08:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hinrik keyptur til Egersund (Staðfest) - Hittir fyrir sinn gamla þjálfara

Hinrik keyptur til Egersund (Staðfest) - Hittir fyrir sinn gamla þjálfara
Canon

Mynd: EIK

Egersund hefur keypt Hinrik Harðarson af Odd Grenland og söðlar U21 landsliðsmaðurinn um innan Noregs. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við Egersund, en bæði lið eru í næstefstu deild Noregs.

Hinrik er 22 ára framherji sem uppalinn er hjá Þrótti en fór til Noregs frá ÍA vorið 2025.
Frá ÍBV til Noregs (Staðfest)
TENGT EFNI

Frá ÍBV til Noregs (Staðfest)

Hann hefur skorað fimm mörk í 32 leikjum í norsku B-deildinni.

Hinrik er mjög ánægður að vera kominn til Egersund og spenntur að sýna hvað hann getur.

„Það er góð tilfinning að vera kominn hingað og fá tækifærið til að sýna mig. Ég mun gera allt sem ég get til að borga traustið til baka með því að gefa 100% í verkefnið fyrir liðið. Fyrsta upplifun af Egersund er mjög góð, kósí bær og ég er vanur litlum samfélögum frá tíma mínum á Íslandi, svo ég held að ég muni passa vel inn hér," er haft eftir Hinriki við undirskrift.

„Mér leið ein og EIK vildi virkilega fá mig og það er nákvæmlega það sem ég þarf núna. Ég hef bara heyrt jákvæða hluti um liðið og ég ég að okkar gildi passi vel saman. Ég hef komið hingað sem andstæðingur áður og veit hversu erfitt er fyrir útiliðin að koma til Egersund. Þess vegna er ég spenntur að vera hluti af heimaliðinu og sitja í heimaklefanum."

Hinrik lýsir sér sem vinnusömum markaskorara sem þrífst best í teig andstæðinganna.

„Ég vil vera í teignum og ná skotunum. Ég gef mig alltaf 100% í verkefnið fyrir liðið og á sama tíma reyni ég að gera leikmenn í kringum mig betri. Ég er ekki týpan sem sólar þrjá og set boltann í slána, en ég er góður í að komast á réttan stað á réttum tíma," segir Hinrik.

Hjá Egersund hittir hann fyrir annan Þróttara, Harald Árna Hróðmarsson sem er aðstoðarþjálfari Egersund. Haraldur þjálfaði hann í 4.-6. flokki Þróttar.

Egersund er í 7. sæti OBOS-deildarinnar, fimm stigum á eftir Odd. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Strömsgodset á sunnudag.
Hinrik keyptur til Egersund (Staðfest) - Hittir fyrir sinn gamla þjálfara
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Árni er aðstoðarþjálfari Egersund.

Haraldur Árni er aðstoðarþjálfari Egersund.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.