Fotbolti.net
06.08.26 - 12:18
Kári Snorrason

Íslenskur umboðsmaður í kringum metkaup Coventry

Aggi ásamt Yirenkyi.

Aggi ásamt Yirenkyi.

Canon

Mynd: Aðsend

Coventry er að festa kaup á ganverska miðjumanninum Caleb Yirenkyi frá Nordsjælland. Verðmiðinn er sagður nema um 27 milljónum evra, sem myndi gera Yirenkyi að dýrasta leikmanni í sögu Coventry og jafnframt dýrustu sölu frá dönsku úrvalsdeildinni.

Yirenkyi, sem er tvítugur miðjumaður, er hjá umboðsskrifstofunni CAA Stellar og er Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður Ganverjans.

Coventry eru nýliðar í ensku deildinni en liðið vann ensku Championship deildina á síðustu leiktíð undir stjórn Frank Lampard.
Enn á eftir að staðfesta skipti Yirenkyi en ljóst er að hann verði ekki með Nordsjælland í kvöld þegar liðið heimsækir Val heim á Hlíðarenda í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.