Fotbolti.net
06.08.26 - 12:24
Kári Snorrason

Salah skrifar undir tveggja ára samning við Trabzonspor (Staðfest)

Skrifar undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið.

Skrifar undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið.

Canon

Mynd: Trabzonspor

Mohamed Salah hefur skrifað undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Trabzonspor.

Salah mætti til Tyrklands í gær þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur og gekkst undir læknisskoðun.

Egyptinn gerði samkomulag við Liverpool um að slíta samstarfinu ári áður en samningur hans við félagið átti að renna út og yfirgaf hann Bítlaborgina í sumar
Myndir: Salah fékk rosalegar móttökur í Istanbúl
TENGT EFNI

Myndir: Salah fékk rosalegar móttökur í Istanbúl

Salah fer frá Liverpool sem einn allra besti leikmaður í sögu félagsins. Hann skoraði 257 mörk í 442 leikjum með Liverpool. Salah vann úrvalsdeildina tvisvar, Meistaradeildina tvisvar, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn einu sinni.

Hann er 34 ára og er sagður skrifa undir tveggja ára samning við tyrkneska félagsins. Trabzonspor vann tyrkneska bikarinn á síðasta tímabili og endaði í 3. sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.