Fotbolti.net
06.08.26 - 16:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sigurborg Katla í FH (Staðfest)

Sigurborg Katla í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Víkingur Reykjavík og FH hafa komist að samkomulagi um að Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir leiki með FH á láni út yfirstandandi tímabil.

Sigurborg Katla er markvörður sem uppalinn er hjá Víkingi og á að baki 101 leik fyrir Víking. Hún er fædd 2006 og á að baki 27 leiki fyrir yngri landsliðin.
„Víkingur óskar Sigurborgu Kötlu góðs gengis með FH á meðan lánsdvölinni stendur og hlakkar til að fylgjast með framvindu hennar það sem eftir lifir tímabils," segir í tilkynningu Víkings.

FH er á toppi Bestu deildarinnar en Víkingur er í næstneðsta sæti. Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er aðalmarkvörður Víkings og Aldís Guðlaugsdóttir er aðalmarkvörður FH.

FH hefur ekki verið með varamarkvörð í undanförnum leikjum. Steinunn Erna Birkisdóttir, sem hefur verið varamarkvörður fyrir Aldísi, er tábrotin og hefur því ekki verið á skýrslu í síðustu leikjum.

Næsti leikur FH verður gegn Fram eftir sex daga.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.