Fotbolti.net
06.08.26 - 18:19
Brynjar Ingi Erluson

Vini Jr framlengir við Real Madrid til 2032 (Staðfest)

Vini Jr framlengir við Real Madrid til 2032 (Staðfest)
Canon

Mynd: Real Madrid

Real Madrid hefur staðfest að brasilíski sóknarmaðurinn Vini Jr hafi framlengt samning sinn við félagið til ársins 2032.
David Ornstein og Fabrizio Romano greindu frá því fyrir rúmum hálftíma að Vini Jr og Real Madrid hefðu náð samkomulagi um nýjan samning.

Brasilíumaðurinn hækkar verulega í launum en samningurinn gildir til ársins 2032.

Vini Jr vildi helst vera áfram hjá Real Madrid en var opinn fyrir því að ganga til liðs við Englandsmeistara Arsenal ef viðræðurnar við Madrídinga hefðu siglt í strand.

Eftir jákvæða fundi síðustu daga hefur Real Madrid nú staðfest tíðindin á heimasíðu sinni.

„Vinicius Jr hefur orðið einn mikilvægasti leikmaðurinn á einu sigursælasta tímabili í sögu félagsins,“ segir í yfirlýsingu Madrídinga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.