Fotbolti.net
06.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Zerbi biðst afsökunar: Læknateymið ýtti á mig

De Zerbi biðst afsökunar: Læknateymið ýtti á mig
Canon

Mynd: EPA

Tottenham nældi í sitt fyrsta stig í úrvalsdeildinni í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Nottingham Forest.

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir að læknateymið hafi ýtt á hann að gera skiptingar og það hafi eyðilagt flæði leiksins.
„Ég biðst afsökunar því læknateymið ýtti á mig að skipta Savio og Udogie út af eftir 60 mínútur. (Varamennirnir) Kudus og Robertson spiluðu vel en það var ekki gott að gera tvöfalda skiptingu á þessum tímapunkti," sagði De Zerbi.

„Við getum ekki tekið áhættur með meiðsli aftur. Savio er of mikilvægur fyrir okkur, það sama má segja um Destiny. Við misstum jafnvægi og tengingu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.