06.09.26 - 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Fabio Grosso fyrstur til að fjúka í Serie A

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fabio Grosso er fyrsti þjálfarinn til að vera rekinn á ítalska deildartímabilinu eftir herfilega byrjun með Fiorentina.
Fiorentina er eitt af níu félagsliðum deildarinnar sem skiptu um þjálfara í sumar og er Grosso því aðeins rekinn eftir fjóra leiki við stjórnvölinn.
Tímabilið byrjaði á þægilegum sigri gegn Benevento í bikarnum en þrír tapleikir í þremur deildarleikjum þykja gjörsamlega óviðunandi í Flórens.
Fiorentina tapaði 4-0 gegn Roma í fyrstu umferð og svo 0-3 á heimavelli gegn nýliðum Frosinone áður en liðið tók á móti Torino um helgina. Lærlingar Grosso náðu forystunni en misstu hana niður og töpuðu 1-2. Þess vegna hefur Grosso verið rekinn, en hann var fimmti þjálfari Fiorentina á rétt rúmum tveimur árum.
Grosso var ráðinn til Fiorentina eftir að hafa gert flotta hluti með Sassuolo síðustu tvö árin en er núna án félags eftir aðeins þrjá mánuði í nýju starfi.

ACF Fiorentina comunica che Fabio Grosso è stato sollevato, in data odierna, dall’incarico di allenatore della Prima Squadra maschile. pic.twitter.com/EKIpk5r8yt
— ACF Fiorentina (@acffiorentina) September 6, 2026

Mynd: EPA