Fotbolti.net
06.09.26 - 18:53
Ívan Guðjón Baldursson

Tók áhorfanda hálstaki í Championship

Tók áhorfanda hálstaki í Championship
Canon

Mynd: EPA

Lögregluyfirvöld í Portsmouth eru með mál til rannsóknar eftir viðureign Portsmouth gegn Cardiff í Championship deildinni á laugardaginn.
Krystian Bielik, varnarmaður Cardiff, fór að sækja bolta sem fór útfyrir hliðarlínuna. Áhorfandi, ungur stuðningsmaður heimaliðsins, hélt á boltanum og tafði leikinn örlítið.

Bielik brást illa við og tók áhorfandann hálstaki, sem svaraði með að slá frá sér og var að lokum vísað út af leikvanginum.

„Við getum staðfest að við erum með mál til rannsóknar þar sem táningsstrákur virtist verða fyrir líkamsárás á meðan á fótboltaleiknum stóð á Fratton Park," segir lögreglan.

Skömmu eftir atvikið var öðrum áhorfanda vísað út fyrir að kasta bolta í hausinn á varnarmanni Cardiff.

Mögulegt er að Bielik verði kærður fyrir líkamsáras, en hann er 28 ára gamall og var samningsbundinn Arsenal í fjögur ár. Bielik á ellefu landsleiki að baki fyrir Pólland.
Tók áhorfanda hálstaki í Championship
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.